It´s not where you´re from. It´s where you´re at!
Bloggsíður
síður
21.06.2008 15:04:06 / gudrun-stebbi

YEJJJ!!!

Jæja... þá er komið að því að blogga aðeins.
Það er bara búið að vera að vinna vinna og vinna go vinna aðeins meira....fékk reyndar 2 daga í symarfrí í húsasmiðjnni en það var ekki frí fyrir mig.......ég fór í reynslutíma í 2 daga hjá honum Gunnari niðrá Kaffitorgi  í  eldhúsinu :haha:(þeir sem ekki vita  hvað það er að þá er það staður sem maður fær geðveikt góðann mat):þ
Í dag er síðastu dagurinn minn í húsó :haha::haha: loksins loksins og er að fara vinna niðrá Kaffitorgi á mánudaginn, maður fær þá einhverja allmeginlega hreyfinu í vinnuni en ja held að það sé ekki neitt meira í bili

K.v.
Guðrún :klikk:

» 1 hafa sagt sína skoðun

13.05.2008 12:17:51 / gudrun-stebbi

Þið eruð æði!!!

Það gerðist svolítið á laugardeginum sem ég átti alls ekki von á :)
Það var þannig að Lilja sendi mér sms á laugardeginum og spyr mig hvort að ég vilji fara í ljós og panta svo pizzu um kvölmatarleitið og ég bara okey......svo var eg búin í vinnuni og þá fóum við í ljós í nýju bekkina á Stjörnusól.
Þegar því var lokið að þá skutlaði Lilja mér heim og sagði að hún ætlaði í sturtu og svo að hringja í mig  og panta pizzu (klukkan var hálf 7 þá) ég áhvað að taka til heima og var allveg á fullu til kl 8 og Þá fór ég að spá hvað tæki svona langann tíma í sturtu.......þannig að ég hringdi og hún sagði að bíllinn kæmsit ekki í gang og hún bað mig um að sækja pizzurnar en það væri samt 20 mín í þær.
Svo allt í einu var Stebbi kominn í spariföt 8| og ég sagði að við værum nu bara að fara að borða pizzu og svo reyndi hann að samfæra mig um að fara í fín föt en það gekk nú ekki neitt mjög vel en eg fór í samt svona pínu spariföt.
Svo förum við Stebbi niðrá greifann og svo sé ég lilju og Nonna :s ég bara hvað eruð þið að gera hérna...ekki komuð þið labbandi....þá sagði Lilja þetta var bara svona til að þú kæmist ekki af þessu og ég vissi ekki neitt og vissi ekkert hvað væri að gerast og allir í sparifötum.
Eftir smá bið að þá var kallað "Lilja borð fyrir 4" og ég bara what 8| og þá voru þau að halda uppá að ég hafi fengið svo góðar enkunnir :haha: og þá höfðu þau verið að undirbúa þetta síðan á þriðjudeginum og að meirasegja búin að hringja í Halldóru til að vera viss um að ég þyrfti ekki að passa á laugardagskvöldið......eftir allveg yndislega sveppasteik og yndislegann ís að þá fórum við heim til okkar og þá voru þau með gjöf sem þau öll gáfu mér og viti menn það var salt og pipar staukar og ekki n+og með það að það er hægt að stylla grófleikann þegra maður malar piparinn eða saltið....allgjör snilld
Takk æðislega elsku ástin mín :d
og takk Lilja og Nonni fyrir frábært kvöld og gott plan :þ

nóg í bili

K.v.
Guðrún :klikk:

» 3 hafa sagt sína skoðun

03.05.2008 12:32:07 / gudrun-stebbi

skólinn búinn.

Þá er skólinn á enda :cry: ég hálf sakna þess að vera ekki í skólanum:d við vorum svo góður hópur og alltaf eithvað skemmtilegt að gerast,,,,væri allveg til í aðra önn með þeim.
Ég er búin að fá útúr 3 áföngum sem Malla kenndi.
Matseðlafræði 101 - Einkun 8
Matseðlafræði 201 - Einkun 8
Matarmenning í öðrum löndum - Einkun 8

:haha::haha:
Ég hef alldrei fengið svona góðar enkunir í skóla áður þannig að fyrir mér er þetta mjög góð frammistaða og ætla að leyfa mér að vera montin....takið eftir því að þetta eru loka einkunnir :þ

jæja látum þetta duga í bili.

K.v.
Guðrún :klikk:

» 8 hafa sagt sína skoðun

16.04.2008 14:19:22 / gudrun-stebbi

það er spurninginn.

það er voðalega lítið að frétta svosem.
Ég og stebbi fórum í fermingarveislu hjá Vilborgu (litla systir stebba) og satta að segja var það bara mjög gaman að hjálpa þeim að undirbúa salinn og svona.....ég var beðin að vera á barnum til að hella gosi í glös en nokkrir vildu bara tvöfaldann vodka :d en þar sem ég er ekki með leyfi fyrri að afgreiða áfengi að þá gekk það ekki upp......annars var helgin bara stuð enda í fyrsta skipti í langann tíma sem ég var í fríi í skólanum og vinnu.....mjög skrítið, yfirleitt er það þannig að ef ég er ekki í skólanum að þá er ég að vinna.
Þar síðurstu helgi fékk ég 4 verkefni til baka frá kennaranum mínum og ég fékk 10 fyrri öll verkefnin :haha::d ekkert smá stolt af mér :p
Segjum þetta got í bili.

K.v.
Guðrún :klikk:

» 4 hafa sagt sína skoðun

02.04.2008 16:35:25 / gudrun-stebbi

Kalli Bjarni aftur handtekinn - nú með amfetamín

Idol-stjarnan fyrrverandi Kalli Bjarni, eða Karl Bjarni Guðmundsson, var handtekinn á föstudag með 70 grömm af amfetamíni í fórum sínum. Jafnframt var 24 ára gömul vinkona hans tekin en þau voru saman á hóteli í Reykjavík.

Greint er frá málinu á forsíðu DV í dag. Þar segir m.a. að bæði Kalli og vinkona hans hafi veitt lögreglunni mótspyrnu er lögreglan hugðist færa þau í járn.

DV segir að amfetamínið sem tekið var af Kalla og vinkonu hans hafi verið ætlað til sölu og dreifingar. Málið telst upplýst.

Kalli Bjarni bíður afplánunnar á dómi sem hann fékk vegna innflutnings á fíkniefnum í fyrra. Þá var hann tekinn á Keflavíkurflugvelli með tvö kíló af kókaíni í fórum sínum.


Kalli Bjarni fluttur heim til mömmu

„Hann er kominn heim á hótel mömmu og verður hjá mér þangað til hann fer inn," segir Sveinbjörg Karlsdóttir, móðir Kalla Bjarna, sem handtekinn var á föstudaginn á Hótel Vík ásamt vinkonu sinni með 65 grömm af amfetamíni.

Sveinbjörg segir að Kalli Bjarni hafi verið í rugli undanfarin einn og hálfan mánuð og að hann sé afar illa farinn eftir ólifnað undanfarinna vikna. „Hann er grindhoraður, með bauga undur augum og raddlaus," segir Sveinbjörg.

Hún segir að hann hafi beðið hana um að fá að búa hjá sér þar til hann hefur afplánun á tveggja ára dóm sem hann fékk fyrir að reyna að smygla tveimur kílóum af kókaíni í júní á síðasta ári, þann 23. apríl næstkomandi. „Ég fékk símtal frá honum á laugardaginn þar sem hann sagði mér frá handtökunni og hann var eyðilagður maður. Hann bað um að fá að búa hjá mér og maður segir auðvitað ekki nei. Ég stend enn hundrað prósent á bak við hann og hef ekki misst vonina á að hann nái sér aftur," segir Sveinbjörg.

Kalla Bjarna bauðst að fara í meðferð inn á Vog strax eftir að hann var handtekinn á föstudaginn og dvelja þar fram að afplánun en hann afþakkaði boðið þar sem hann átti eftir að klára hluti áður en hann hefur afplánun á Litla-Hrauni.

„Hann á börn sem hann þarf að kveðja og síðan þarf hann að gera hreint fyrir sínum dyrum á mörgum stöðum. Ég veit ekki hvort það hefði verið sniðugt hjá honum að fara beint í meðferð og þaðan í fangelsið. Hann er edrú núna og vonandi verður hann það þar til hann fer inn. Þá tekur við sama prógramm og hann var í þegar hann sat í gæsluvarðhaldi og ég bið til guðs að hann haldi sér edrú þarna inni."

8|þvílík fyrirmynd :$


K.v. Guðrún :klikk:


» 0 hafa sagt sína skoðun

31.03.2008 12:25:30 / gudrun-stebbi

Of feit til að fara í fangelsi

ÉG VANN SKAMMARVERÐLAUNIN!!! :haha:
Reyndar miskildi ég þetta aðeins......þetta var einstakingskeppni ekki hópkeppni en allvegana þá rúsatði ég þeim með 45 sig :haha:
sem er ekki neitt neitt og Inga var í 3 sæti með 117 sig, Inga var ansi góð í kelunni....með nokkrar fellingar og hún sem sagði að hún væri svo léleg.

Hérna er ein frétt sem ég rakst á:

Kona sem ákærð hefur verið fyrir að verða valdur að dauða tveggja ára barns kann að reynast of feit fyrir fangelsisvist. Málið hefur vakið óhug vestanhafs, en konan er hátt í hálft tonn að þyngd og getur ekki komist út fyrir dyr af sjálfsdáðum.

Frænka konunnar hafði falið henni að fylgjast með tveggja ára barni sínu, þrátt fyrir margítrekaðar aðvaranir barnaverndaryfirvalda um að frænkan væri ófær um að sjá um barnið. Áverkar á barninu benda til þess að það hafi látist vegna höggs á höfuðið og er frænkan grunuð um að hafa slegið það. Frænkan hefur reynst missaga í málinu og meðal annars haldið því fram að barnið hafi kramist undir henni þegar hún ætlaði að velta sér fram af rúminu sínu.

Barnaverndaryfirvöld hafa legið undir ámæli vegna þessa fyrir aðgerðarleysi sitt, en þau höfðu haft afskipti af móðurinni fimm sinnum vegna málsins.

Hræðilegt og sorglegt, greyið barnið :cry:

K.v.
Guðrún :klikk:


» 2 hafa sagt sína skoðun

29.03.2008 11:05:38 / gudrun-stebbi

Stuð stuð stuð

Það er svosem ekkert merkilegt að frétta.......í kvöld mun allir starfsmenn í húsó fara í keilu og það verður veitt verðlaun fyrri besta liðið og lélegasta:p ég býst ekki við því að ég verði í besta hópnum en frekar í því léleasta, sem er allt í lagi :haha:
Svo eftir keilu þá er farið í dátann og fengið sér flatbökur og bjór en þar sem ég og Inga meigum ekki versla bjór á barnum að Þá ætlum við bara að fá okkur gos :lol:

Annars er ég bara að vinna og vona að tíminn líði hratt.


K.v.
Guðrún :klikk:

» 7 hafa sagt sína skoðun

19.03.2008 10:25:45 / gudrun-stebbi

Aumingja konan.

Þýsk kona ætlar í mál við sjúkrahús í Hochfranken í Þýskalandi eftir að hún var lögð þar inn til að gangast undir aðgerð á fæti, en vaknaði þess í stað með nýtt og endurbætt endaþarmsop.

Sjúkrahúsið hefur nú þegar vikið skurðlæknaliði stofnunarinnar frá störfum þar sem ljóst þykir að sjúkraskýrslur sjúklinga hafi ruglast.

Konan fékk því ekki bót sinna meina heldur fékk þess í stað aðgerð sem annar sjúklingur, sem átti við hægðarvandamál að stríða, átti að fá.

Fóturinn er því ennþá til vansa og ætlar konan því í mál við spítalann og leitar nú að sjúkrastofnun sem hún treystir til að framkvæma aðgerðina á fætinum.

Pælið í  að lenda í þessu, ég hefði nú heimtað að þeir mundi gera aðgerðina á löppinni frítt. Ég hefði gjörsamlega snappað.
En samt geta nú allir gert mistök en maður verður að passa svona lagað.

En annars er ég bara í vinnuni að hanga eithvað á netinu. það væri nú bara sniðugt að koma með bók og lesa, þá mundi tíminn líða hraðar.
Komið gott í bili.

K.v.
Guðrún Ósk :klikk:


» 2 hafa sagt sína skoðun

11.03.2008 14:18:52 / gudrun-stebbi

Vinnan.

Ég er í vinnuni núna og einsog sést að þá er ekki mikið að gera :s
Er eillega bara að bíða eftir að Jón (starfsmaður húsasmiðjunnar) láti mig vita að flísarnar mínar séu tilbúnar. hann ætlaði að ná í þær fyrir mig því að þetta er svo ægilega þungt. En já ég og Stebbi ætlum að flísaleggja eldhúsið 2 fermetra á veggnum fyrri ofann vaskann og eldavélina, .þannig að eldhúsið verður geðveikt flott:haha: og svo eldhúsviftan þegra það er búið að klára fráganginn.
Um helgina var ég bara í skólanum, alltaf gaman í skólanum :d þó að maður þurfi að vakan kl 7 á sunnudagmorgna, en maður verður að fórna ýmsu til að fá druma sína :p

Ég ætla að fá smá álit hjá ykkur,
ef þið ættuð heima í blokk og það væri stanslaust paty fyrir ofan ykkur, ekki bara um helgar heldur flest kvöld. Ég er að tala um mjög háværa tónlist, munduð þið ekki vera mjög pirruð á nágrönnunum-sérstkalega ef þið væruð búin að fara og tala við þau og byðja þau um að lækka í tónlistinna.:^)
Munduð þið hringja í lögguna ???

K.v.
Guðrún :klikk:

» 6 hafa sagt sína skoðun

09.03.2008 15:26:16 / gudrun-stebbi

9 mars :)

Hæ, langt síðan síðast, það er búið að vera klikkað að gera hjá mér í náminu....erfið verkefni og mörg.
Ég skilaði verkefninu í dag sem beturfer og get farið að slaka á og svona.
Fór í skindipróf fyrir viku síðan og fékk útúr því, 49/50 er ansi gott:) ætli það sé ekki einkunin 9 eða 9,5 og er mjög ánægð með þetta :haha:
Annars er ekki mikið að frétta svonsem, búið að setja upp nýja eldhúsviftu:d þetta veriður að vera almeginlegt.
Æli þetta sé ekki gott í bili.

K.v.
Guðrún :klikk:

» 1 hafa sagt sína skoðun

24.02.2008 18:45:44 / gudrun-stebbi

24 Ferbrúar

Til hamingju með daginn konur og stelpur :)
Það hefur ekki verið neitt mikið að gerast hjá mér nema þá bara að læra allveg á fullu og endalaust af heimavinnu8|
Stebbi er búinn að gera gat í eldhúsvegginn og út á svalir, Búið að vera mikil læti þessa dagana enda er verið að bora gat fyrri barka út svo að nýja viftan mín blási út en ekki í íbúðina einsog sú gamla.
Helgin var ágæt, það var bara vinna á laugardeginum og svo um kvöldið var notturlega horft á evrovisionlögin. Svo var ég, Stebbi, Inga og Fjóla að spila party og co :haha: það var arosalega gaman og skrautlegt. Þegar spilið var búið þá fórum ég og Inga í party já stelpunum í húsó, það var ansi skrautlegt enda sumir á rassgatinu.

Ekki meira í bili.

Njótið dagsins stelpur og konur ;)

K.v. Guðrún :klikk:


» 1 hafa sagt sína skoðun

28.01.2008 22:16:15 / gudrun-stebbi

Erfið helgi

Það hefur bara verið vinna þangatil á föstudaginn að þá fór ég í fyrsta skiptið í skólann árið 08 en já ég fór um 2 leitið og mætti og allir rosalega hressir og glaðir að vana :D

voru svo í skólanum til 8 um kvöldið.

Á laugardeginum þá vaknaði eg klukkan 8 til að fara í skólann kl 9 að þá fórum við í kokkabúningana og elduðum einsog vitleisingar fullt hlaðborð af góðum mat :haha:

svo var komið að sunnudeginum og vakanði ég kl 7 og það var mjög erfitt en maður verður að fórna fyrir þetta :)

Annars gerðist ekkiert merkilegt.

Ég set svo inná síðuna myndir úr matartæknatímnunum fljótlega 8)

K.v.

Guðrún :evil:


» 0 hafa sagt sína skoðun

14.01.2008 14:30:22 / gudrun-stebbi

14 Janúar

hæ.....helgin hjá mer var róleg að vana,á föstudeginum fórum við stefán niðrá bæjarskrifstofu og skráðum okkur í sambúð :D og gengum frá ýmsum hlutum einsog að rifta leigusamningnum. og var svo að vinna til 6.

 á laugardeginum var ég að sjálfsögðu að vinna  en tíminn leið svo hratt að dagurinn var búinn áður en maður vissi. svo var rokið heim og eldaað lasagne og ég bauð vínkonu minni Nönnu í mat. Að hennar sögn að þá var maturinn ljúffengur :haha: og svo var bara horft á dvd og borðað snakk og svona.

Sunnudagurinn lá maður í leti, fórum í mat til mömmu og pabba og svo eftir það leigðum við dvd mynd og svo bara að sofa :D

Komið nóg í bili.

k.v.

Guðrún :klikk:


» 2 hafa sagt sína skoðun

08.01.2008 13:51:13 / gudrun-stebbi

Leiðist!

Þá er byrjað að vinna á fullu eða þannig séð...það er nánast ekkert að gera hérna útí Húsasmiðju. Ég er bara eithvað að hanga á netinu og afgreiði inná milli þegar fólk kemur sem er nu ekki margir.

Af því ég er að læra matfræðinginn að þá byrja skólinn ekki fyrren 25 Janúar og þá byrjar helgarskólinn og næringarfræði í fjarnámi annars verð ég bara að vinna þangatil, ekki veitir manni af peningunum þegar marður er búin að kaupa ser íbúð :D

Annars veit maður ekkert hvað á að gera af sér í vinnuni.

Endilega skifa í gestabók :P

k.v.

Guðrún :klikk:

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

02.01.2008 19:52:29 / gudrun-stebbi

Komið nýtt ár.

Þá er komið árið 2008, vá8|tíminn líður mjög hratt en allavegana voru ármótin mjög góð hjá okkur.

Byrjuðum daginn á því að hanga uppí rúmi og horfa á sjónvarpið. svo vara farið í matarboð um 6 leitið. Eftir það var farið til mömmu og pabba (Guðrún) og ég hjálpaði mömmu að gera heitann rétt fyrir veislu sem þau voru að fara í.

Um 10 leitið þá var brunað til mömmu (Stebba) og við horfðum á skupið þar og skutum síðan upp fullt af flugeldum. Tveir flugeldar sprungu á jörðinni :$ það var svakalegt og ægileg bomba, svekkjandi:cry:

Allavegana fórum við svo bara heim og horfðum á dvd og sjónvarpið og svo bara að sofa :haha: erum svo löt í einhverju party standi.


komið nóg í bili.

Kv Guðrún og Stefán :klikk:


» 1 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2
Dagsetning
21. mars 2010
Heimsóknir
Í dag:  2  Alls: 3990
Klukkan
Talning
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 452 dögum
verð ég 20 ára
Könnun
Þegar ég fer næst til útlanda, hvert á ég að fara ?